Home

Forsíða

Fréttir

 

Fræðslufundur 04.02.2010
Áskoranir, ástir og kynlíf
Fimmtudaginn 4. febrúar mun Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur halda fyrirlestur um áhrif sjúkdóma á kynlíf og náin samskipti (bein og óbein áhrif), helstu áskoranir í sambandi við stóma og CCU í því sambandi og hvað sé til ráða og hvað einkennir gott kynlíf.
 
Fundurinn er haldin í sal hjá Krabbameinsfélaginu við Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, neðsta hæð, klukkan 20:00. Fundurinn er haldin í samvinnu við Stómasamtök Íslands.
 
Eftir fundinn er boðið upp á kaffi, vonumst til að sjá sem flesta Stjórnin.
 
 
 
Fræðandi spil fyrir okkur!
Á heimasíðu Efcca er spil með spurningum um allt sem snýr að ristlinum. Það sem er skemmtilegast er að það er búið að þýða spilið yfir á Islensku. Þetta virkar þannig að hægt er að prenta út spilið á fjögur A4 blöð og klippa út spilakarla og tening, krakkar hafa sérlega gaman af þessu, Ná í spilið hér Efcca spil góða skemmtun.
 
 
 

Fræðslufundur 10.11.2009
Jóga slökun og heilsubót

Þriðjudaginn 10.nóvember ætlum við að hittast í Lotus jógasetrinu í Borgartúni 20, 4 hæð, kl 20:15 og tíminn byrjar 20:30. Auður Bjarnadóttir jógakennari ætlar að fara yfir grunnatriði í jóga og hvernig við getum nýtt okkur jóga til slökunar og heilsubótar.
Þessi tími er fyrir alla, byrjendur jafn sem lengra komna. Gott er að mæta í þægilegum klæðnaði, dýnur og allt sem þarf til iðkunar jóga er á staðnum. Heilsusamlegar veitingar og spjall að loknum tíma. Vonumst til að sjá sem flesta.
 
 
 
Ný stórn kosin fyrir stjórnarárið 2009 - 2010
Varaformaður: Ingibjörg Konráðsdóttir
Ritari / formaður ungliðahreyfingar: Anna Lind Traustadóttir
Gjaldkeri: Edda Svavarsdóttir
Meðstjórnandi: Hrefna B. Jóhannsdóttir
Varamaður: Þorgeir Magnússon
 
 
 
Aðalfundur 05.05.2009
Aðalfundurinn verður haldin þriðjudaginn 5. maí 2009,
klukkan 19:30 í sal Stómasamtakana Skógarhlíð 8.

Venjuleg aðalfundarstörf. Fræðslufundur um meðgöngu og áhrif lyfja verður strax eftir aðalfund. Sjá auglýsingu neðar.
 
 

Fræðslufundur maí 2009
CCU og Stómasamtökin hafa ákveðið að sameinast um fyrirlestur þar sem Kjartan Örvar fjallar um meðgöngu og áhrif lyfja. Algengast er að Crohns sjúkdómur og Colitis sjúkdómur komi fram hjá ungu fólki á milli tvítugs og þrítugs, því er oft þörf á ráðgjöf varðandi meðgöngu, fæðingu og brjóstagjöf. 
 
 
 
Ný heimasíða
Ný heimasíða hefur nú litið dagsins ljós. Hér ætlum við að safna saman öllu því efni sem við getum viðað að okkur um Chron´s og Colitis sjúkdómana. Við vonum að efni þessarar síðu munu koma sjúklingum og aðstendendum að góðum notum.
Ef þú sér eitthvað sem má gera betur eða jafnvel vantar þá endilega sendu línu á vefstjóra / Katrínu katrin@snillingar.com
 
 
CCU samtökin  | Pósthólf 5388 | 125 Reykjavík | Talhólf 881 3288 | ccu@ccu.is / www.ccu.is
 
 
Copyright © 2010 ccu.is. All Rights Reserved.
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.